Ferill 4. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: Word Perfect.
1995. – 1064 ár frá stofnun Alþingis.
119. löggjafarþing. – 4 . mál.
4. Frumvarp til laga
um gjald af áfengi.
(Lagt fyrir Alþingi á 119. löggjafarþingi 1995.)
1. gr.
Greiða skal til ríkissjóðs sérstakt gjald, áfengisgjald, af áfengi samkvæmt lögum þessÁfengi samkvæmt lögum þessum telst hver sá vökvi sem í er meira en 2,25% af vínanda að rúmmáli. Áfengismagn og áfengisinnihald skal ákveða við 20°C.
2. gr.
Gjaldskyldir samkvæmt lögum þessum eru allir þeir sem flytja inn eða framleiða áfengi hér á landi til sölu eða vinnslu.
Gjaldskyldir eru enn fremur þeir sem flytja með sér til landsins áfengi til eigin nota, svo og þeir sem fá sent áfengi erlendis frá án þess að það sé til sölu eða vinnslu.
3. gr.
Gjald þeirra sem gjaldskyldir eru skv. 1. mgr. 2. gr. skal vera 58,10 kr. á hvern sentilítra af vínanda umfram 2,25 sentilítra í hverjum lítra áfengis.
4. gr.
Af innflutningi þeirra sem gjaldskyldir eru skv. 2. mgr. 2. gr. skal greiða gjald sem hér segir af hverjum lítra hins áfenga drykkjar:
Öl með allt að 15% af hreinum vínanda að rúmmáli 300 kr.
Vín með allt að 15% af hreinum vínanda að rúmmáli 600 kr.
Aðrir áfengir drykkir:
— með 22% af hreinum vínanda að rúmmáli eða minna 1.200 kr.
— með yfir 22% til og með 32% af hreinum vínanda að rúmmáli 1.800 kr.
— með yfir 32% til og með 40% af hreinum vínanda að rúmmáli 2.400 kr.
— með yfir 40% til og með 50% af hreinum vínanda að rúmmáli 3.000 kr.
— með yfir 50% til og með 60% af hreinum vínanda að rúmmáli 3.600 kr.
— með yfir 60% af hreinum vínanda að rúmmáli 7.000 kr.
5. gr.
Þeir sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr. skulu ótilkvaddir senda tilkynningu um starfsemi sína til skattstjóra þar sem þeir eru heimilisfastir. Þeir sem hefja gjaldskylda starfsemi skulu senda tilkynningu áður en starfsemin hefst.
Í tilkynningu skal tilgreina nafn, firmanafn, heimili og kennitölu rekstraraðila og hvers konar framleiðslu eða innflutning sé um að ræða.
Skattstjórar skulu hver í sínu umdæmi halda skrár yfir alla þá sem sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr. laga þessara.
Fjármálaráðherra setur í reglugerð nánari ákvæði um upplýsingaskyldu þeirra sem eru gjaldskyldir skv. 1. mgr. 2. gr., svo og skyldu þeirra til að halda framleiðslu- og birgðabókhald.
6. gr.
Gjald af innfluttu áfengi skal greitt við tollafgreiðslu þess. Fjármálaráðherra er heimilt með reglugerð að veita gjaldfrest á áfengisgjaldi við innflutning í allt að tvær vikur enda séu settar fullnægjandi tryggingar.
Af áfengi, sem framleitt er innan lands til sölu þar, reiknast gjald við sölu eða af
Þeir sem skyldir eru til að innheimta gjald skv. 1. mgr. skulu ótilkvaddir greiða innheimtumanni ríkissjóðs í umdæmi því þar sem þeir eru heimilisfastir áfengisgjald sem þeim ber að standa skil á. Greiðslu skal fylgja skýrsla á þar til gerðu eyðublaði um hina gjaldskyldu sölu.
Hvert uppgjörstímabil vegna gjaldskyldrar innlendrar framleiðslu er tvær vikur. Gjaldagi er annar virkur dagur eftir lok uppgjörstímabils.
Fjármálaráðherra er heimilt að setja í reglugerð nánari ákvæði um innheimtu áfeng
7. gr.
Fjármálaráðherra er heimilt með reglugerð að ákveða að áfengisgjald skuli fellt nið
1. Við sölu áfengis úr landi.
2. Við innflutning og sölu á áfengi til fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli.
3. Við innflutning og sölu á áfengi til aðila sem njóta skattfrelsis hér á landi sam
4. Við innflutning og sölu á áfengi til framleiðslu á vörum sem eru gjaldskyldar sam
5. Af áfengi að tilteknu hámarki sem ferðamenn og farmenn hafa með sér inn í land
Fjármálaráðherra er heimilt að lækka gjald á áfengi sem flutt er inn eða selt til toll
8. gr.
Áfengisgjald skv. 3. og 4. gr. er grunngjald sem fjármálaráðherra er heimilt með reglugerð að víkja frá um allt að 5% til hækkunar eða lækkunar.
9. gr.
Að því leyti sem eigi er ákveðið í lögum þessum um gjaldskyldu, gjaldfrelsi, úr
Að því leyti sem ekki eru ákvæði í lögum þessum um álagningu, innheimtu, til
10. gr.
Ráðherra er heimilt að setja með reglugerð nánari fyrirmæli um framkvæmd laga þessara.
11. gr.
Lög þessi öðlast gildi 1. júlí 1995.
Ákvæði til bráðabirgða.
Greiða skal áfengisgjald samkvæmt lögum þessum af framleiðslubirgðum og ótollafgreiddum innflutningsvörum 1. júlí 1995.
Athugasemdir við lagafrumvarp þetta.
Frumvarp þetta er í meginatriðum samhljóða frumvarpi sem lagt var fram á síð
Með frumvarpi þessu er lagt til að tekið verði upp nýtt gjald er leggja skal á allt áfengi. Gjaldinu er ætlað að koma í stað vínandagjalds af áfengi og er eins og það föst krónutala á hreinan vínanda í áfengi umfram tiltekið mark. Þessi breyting kemur í kjöl
Við núverandi aðstæður er talið eðlilegra og einfaldara fyrir ríkið að afla þeirra tekna af áfengissölu, sem taldar eru æskilegar á hverjum tíma, með því að leggja skatt á innflutning þess og framleiðslu í stað þess að fá tekjurnar sem hagnað af starfsemi einkasöluaðila.
Meginhluti af tekjum ríkissjóðs vegna sölu áfengis er sá hluti álagningar ÁTVR sem kallaður hefur verið vínandagjald. Gjaldið er föst krónutala á hvert prósentustig af vín
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að tekna ríkissjóðs af sölu áfengis verði fyrst og fremst aflað með gjaldi á áfengi á sama hátt og tíðkast um ýmsar vörur, sem bera vörugjald. Gert er ráð fyrir að þetta gjald, líkt og vínandagjaldið nú, verði föst krónu
Ekki er gert ráð fyrir að breytingar þessar leiði til breytinga á meðalverði áfeng
Breytingarnar, sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu, munu hafa talsverð áhrif á starf
Innkaupsverð ÁTVR á áfengi 1.315
Vínandaskattur 4.100
Álagning 610
Heildartekjur 6.025
Frá dregst:
Innkaupsverð ÁTVR á áfengi 1.315
Rekstrarkostnaður 400
Hagnaður 4.310
Gert er ráð fyrir að það gjald sem ríkissjóður leggur á áfengi verði 58,10 kr. á hvern sentilítra af vínanda sem er umfram 2,25 sentilítra í hverjum lítra áfengis. Þeg
Miðað við sölu síðasta árs mundi áfengisgjald skila um 4.100 millj. kr. til ríkis
Innkaupsverð ÁTVR á áfengi 1.185
Álagning 550
Heildartekjur 1.735
Frá dregst:
Innkaupsverð ÁTVR á áfengi 1.185
Rekstrarkostnaður 390
Hagnaður ÁTVR 160
Áfengisgjald af framleiðslu og innflutningi 4.100
Hagnaður ÁTVR og áfengisgjald samtals 4.260
Samkvæmt framangreindu má því áætla að beinar tekjur ríkisins af áfengissölu lækki um u.þ.b. 50 millj. kr. Á móti þeirri lækkun ættu að koma nokkuð auknar tekj
Með vísan til þessa er í frumvarpi þessu gert ráð fyrir að frá og með 1. júlí 1995 afli ríkissjóður tekna af sölu áfengis með sérstöku gjaldi, áfengisgjaldi, sem leggst á allt innflutt áfengi, svo og innlenda áfengisframleiðslu. Um leið leggst niður vínanda
Að öðru leyti vísast nánar til athugasemda við einstakar greinar hér á eftir.
Athugasemdir við einstakar greinar frumvarpsins.
Um 1. gr.
Í þessari grein er lagt til að gjald á áfengi verði lögbundið í stað þess að vera háð ákvörðun fjármálaráðherra á hverjum tíma eins og nú er.
Gert er ráð fyrir að áfengisgjald verði með sama hætti og vörugjald, sbr. lög nr. 97/1987, með síðari breytingum, að öðru leyti en því að áfengisgjald verður magn
Um 2. gr.
Í grein þessari er kveðið á um hverjir skuli gjaldskyldir, þ.e. hverjum beri að greiða gjaldið til ríkissjóðs. Eru það annars vegar þeir sem eru með atvinnustarfsemi, þ.e. flytja inn áfengi til endursölu hér á landi eða stunda framleiðslu hér á landi. Hins veg
Um 3. gr.
Í greininni er kveðið á um fjárhæð þess áfengisgjalds sem þeir skulu greiða sem flytja inn eða framleiða áfengi til sölu hjá þeim aðilum sem rétt hafa til að stunda smásölu á áfengi, þ.e. ÁTVR og veitingahús með vínveitingaleyfi. Gjaldið er ákveð
Um 4. gr.
Í greininni er kveðið á um gjald á það áfengi sem einstaklingar flytja til landsins til eigin nota í samræmi við heimild í áfengislögum, sbr. 2. mgr. 2. gr. Gjald þetta kemur í stað svokallaðs einkaleyfisgjalds sem nú er lagt á innflutning einstaklinga ef hann er umfram það sem ferðamönnum og farmönnum er heimilt að taka með sér án gjalds. Einkaleyfisgjaldið er einnig lagt á áfengi sem einstaklingar fá sent með pósti eða öðrum hætti og þeir fá afhent með heimild ÁTVR.
Auk áfengisgjaldsins greiðist virðisaukaskattur af verði vörunnar að gjaldinu með
Um 5. gr.
Í greininni er kveðið á um skyldu gjaldskyldra aðila til að tilkynna starfsemi sína til skattstjóra sem halda eiga skrár yfir framleiðsluaðila og þá sem flytja inn áfengi til endursölu. Þá er gert ráð fyrir að í reglugerð verði sett ákvæði um birgðabókhald gjaldskyldra aðila sem nauðsynlegt er til að tryggja eftirlit með skattskilum.
Um 6. gr.
Í grein þessari er fjallað um innheimtu áfengisgjalds. Er gert ráð fyrir að gjald af innflutningi verði greitt við tollafgreiðslu og að gjald af innlendri framleiðslu verði greitt miðað við afhendingu frá framleiðanda á tveggja vikna fresti. Er gert ráð fyr
Óhjákvæmilegt er að innheimta áfengisgjaldsins sé svo að segja án gjaldfrests. Ástæðan er m.a. sú að um er að ræða mikla hagsmuni ríkissjóðs. Gjaldið á að skila ríkissjóði rúmlega 4 milljörðum króna á ári, þannig að hver mánuður í greiðslufresti þýðir að um 300 millj. kr. vörslufé yrði í höndum seljenda. Í því felst annars vegar vaxtatap fyrir ríkissjóð og hins vegar áhætta vegna vanskila, gjaldþrota o.fl.
Reiknað er með að innflytjendur eigi þess kost að geyma vöru sína í tollvöru
Það fyrirkomulag, sem hér um ræðir, er áþekkt því sem er í hliðstæðum tilvikum meðal Evrópusambandsríkja þar sem viðskipti með sérskattavörur eins og áfengi og tó
Um 7. gr.
Í grein þessari er opnað fyrir þann möguleika að tiltekin sala áfengis verði gjald
Um 8. gr.
Í greininni er lagt til að fjármálaráðherra verði heimilt að hækka eða lækka áfeng
Um 9. gr.
Með þessari grein er kveðið á um að um innheimtu áfengisgjalds samkvæmt lög
Um 10. gr.
Í þessari grein er lagt til að ráðherra gefi nánari fyrirmæli um framkvæmd laga þessara á sama hátt og tíðkast varðandi vörugjald samkvæmt lögum nr. 97/1987.
Um 11. gr.
Greinin þarfnast ekki skýringar.
Um ákvæði til bráðabirgða.
Rétt þykir að taka af tvímæli um gjaldskyldu áfengisbirgða innlendra framleiðenda og ótollafgreiddrar vöru innflytjenda við gildistöku áfengisgjaldsins.
Fylgiskjal.
Fjármálaráðuneyti,
fjárlagaskrifstofa:
Umsögn um frumvarp til laga um gjald á áfengi.
Með frumvarpi þessu verður í kjölfar afnáms á einkarétti ríkisins til innflutnings á áfengi tekið upp nýtt gjald sem lagt verður á áfengi. Gjaldinu er ætlað að koma í stað vínandagjalds af áfengi og er föst krónutala á hreinan vínanda í áfengi umfram til
Einnig er í frumvarpinu gert ráð fyrir breytingum á fyrirkomulagi við innheimtu áfengisgjaldsins. Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins sá um innheimtu vínandagjalds
Samhliða þessu frumvarpi verða flutt tvö önnur frumvörp þar sem gerðar eru breyt
Ekki er gert ráð fyrir að frumvarp þetta hafi í för með sér aukinn kostnað fyrir rík